28.11.06

Á einhver svona barnapíutalstöð til að setja í vagn sem hann/hún vill gefa mér/lána mér/selja ódýrt???

|

23.11.06

Fokkedí fokk fokk fokk

Hvernig er hægt að vera svona bissí eins og ég, silungurinn nýsloppinn úr mjúku legi(eða svona) og ég er samt á 150.000 km hraða á dag svoleiðis marg-og ofbókuð alla daga fram í miðjan desemeber, leikfimi, sund, mömmumorgnar og nú síðast líklega prófarkalestur á FB og svo tónleikar og fundir... Barnið í pössun nokkrar stundir á viku allerede og mæðrasamviskubitið hreiðrar um sig og vill bíta en hemur sig þó. Ekki kárnar gamanið svo eftir jólin þegar óperustúdíóið byjar og ég tek afdrifaríka ákvörðun um hvort ég geti verið í HÍ (á mig) líka.. æ hve erfitt erfitt erfitt...

|

21.11.06

Er raunhæft að eiga ekki bíl í Reykjavík?*

(*Yfirskrift greinar sem ég ætla að skrifa og senda í Moggann)


Mamma vill að ég kaupi mér bíl og þykist vera búin að finna einn alveg geggjaðan á netinu fyrir "aðeins" (rétt upp hönd sem veit hvað þetta orð þýðir!)250.000 þúsund. Ég svitna og skelf en íhuga það um leið.
Eftir að Jana kom til sögunnar og eiginlega líka eftir að við fluttum í Vesturbæinn hefur ýmislegt breyst, bæði vegalengdir og ferðatíðni. Nú fer ég t.d. 3 sinnum í viku upp í Tónó sem getur verið frekar flókið og mun lengra héðan en frá Hverfis. Stundum fer ég þangað beint úr Áskirkju. Reyndar gengur leið 14 flest það sem ég þarf að fara (Áskirkja, Tónó, Goðheimar), en drottinn minn, í svona færð er ógjörningur að fara ein með Urban Detour Zahara! Maður þarf að lyfta henni yfir stærstu skaflana.. Svo er það blessað ungbarnasundið tvisvar í viku, á Háaleitisbraut, og ég er ekki einu sinni búin að kanna hvernig hægt er að komast þangað í strætó, auk þess vil ég síður hafa hana lengi úti í vagni eftir sundið þegar þau eru kannski með vatn í eyrunum sínum, eins og kuldinn er búinn að vera.
Eins og endranær er mokað fyrir bílana en ekki hina gangandi vegfarendur og barnavagnanna þeirra. Ég vildi bara óska að hér í borg væru peningarnir frekar settir í almenningssamgöngur frekar en umferðarmannvirki á stærð við 101 til að litlu einkabílarnir komist leiðar sinnar. Pælið í því ef peningarnir sem fóru í nýju Hringbrautina hefðu til dæmis verið settir í strætó!!! Eða sporvagna? Af hverju eru ekki sporvagnar á Íslandi? Anyone?

|

17.11.06

Móðurlífsraunir

Ég er orðin svo heiladauð af móðurhlutverkinu að við vinkonu mína sem kom til landsins til að sigra píanókeppni og vildi leika við mig flókna orðaleiki gat ég ekkert annað sagt en :,,Ég er byrjuð í leikfimi" og brosað eins og fábjáni út í annað.
Eins og ég var nú búin að hlakka til að eiga "akademískt kombakk" á 60 ára afmæli Mímis í kveld, eða fara á Sykurmolana, kom það upp úr dúrnum í gærkveldi að ekki einasta fæ ég ei pössun fyrir mitt eigið barn heldur bættist önnur anganlóra við sem ég þarf að gæta. Þar með fóru þeir draumar um flört við gamla skólafélaga og jafnvel kennara lönd og strönd. Best ég æfi mig í að vera Mary Poppins í dag svo ég geti verið skemmtileg við þær báðar í kvöld.
Hins vegar fór ég í leikfimi (nema hvað!) í morgunsárið og þegar ég var búin að Hreyfa mig og fara í sturtu og blása á mér hárið og bera á mig dýrt bodylotion fylltist ég svo mikilli gleði yfir minni litlu tilveru að ég fór og fékk mér ávaxtabúst á hreyfingarbarnum og var glöð í bragði alla leiðina heim. Hins vegar er veðrið þesslegt (eitt orð?!) að mig langar helst í Kringluna og kaupa mér húfu og jafnvel hitaeiningaríkan kaffibolla en hollt meðlæti. Svona hef ég nú sérhæfðar óskir.

|