Ástand dagsins
Byrjuð er með beinverki,
buguð mjög af hita.
Um minn stóran ógnar- kropp
andar köldum svita.
Svimi á mig í morgun rann
mjög svo heiftarlega.
Skolað gat ég skálarbrunn,
skyrpt og ælt - af trega.
Á æfingu þá æddi fljótt,
óperu að syngja.
Fölnaði óðum fljóðið mótt,
falskar nótur klingja.
Nunnur neyða Slöppu heim:
"Nei, þú skalt ekki að vera hér.
Láttu oss um læðubreim
þá líknar móðir María þér."
Skutlaðist á Skódanum
skjótt í föðurhúsin.
Guggin mjög í Goðheimum,
glær hún syngur blúsinn.
Móðir bíður Paratabs
píslarvætti smáum.
BOTNIÐ!
Ljóðskýringar: Að skola skálarbrunn: Æla í klósettskál.
Slappa: Undirrituð, slöpp.
buguð mjög af hita.
Um minn stóran ógnar- kropp
andar köldum svita.
Svimi á mig í morgun rann
mjög svo heiftarlega.
Skolað gat ég skálarbrunn,
skyrpt og ælt - af trega.
Á æfingu þá æddi fljótt,
óperu að syngja.
Fölnaði óðum fljóðið mótt,
falskar nótur klingja.
Nunnur neyða Slöppu heim:
"Nei, þú skalt ekki að vera hér.
Láttu oss um læðubreim
þá líknar móðir María þér."
Skutlaðist á Skódanum
skjótt í föðurhúsin.
Guggin mjög í Goðheimum,
glær hún syngur blúsinn.
Móðir bíður Paratabs
píslarvætti smáum.
BOTNIÐ!
Ljóðskýringar: Að skola skálarbrunn: Æla í klósettskál.
Slappa: Undirrituð, slöpp.
|
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home