25.10.07

10 litlir negrastrákar

Lesið þetta.




Afsakið, get bara ekki orða bundist, en af hverju er verið að endurútgefa þessa bók?

Ég sló inn á færslutitilinn á google og sé að ýmsir eru að blogga og viðbrögðin fara mjög í taugarnar á mér. Til dæmis þetta endalausa hjal um að það megi nú ekki gera grín að neinum nú til dags og ef þetta væri um 10 hvíta stráka væri það allt í lagi. En það er ekki málið. Málið er að 10 hvítir strákar væru aldrei dregnir saman í eitthvað svona furðulegt samhengi! Nær fólk því ekki? Sama á við um indíána, 10 litlir indíánar var líka bók, ekki satt? Bókin endurspeglar hugmyndir sem fólk hafði í alvörunni um svart fólk, að það væri 2. flokks. Hver hefur ekki heyrt hina lífsseigu klisju um að "það sé vísindalega sannað að svartir eru betri í íþóttum en hvítir".. kjaftæði! Eða bara það sem stóð í Mogganum í kringum 1920 og kom frá í þætti á RÚV í kvöld að nú væri komin í bíó mynd með svertingjum sem væru alvöru leikarar þótt þeir væru svertingjar! Afsakið, ég hef aldrei heyrt slíku haldið fram um hvíta manneskju, að hún væri almennileg manneskja, þrátt fyrir að vera hvít. Eina athugasemd við einhverja færslu las ég, á þá leið að viðkomandi (sem skrifaði kommentið) hefði aldrei orðið vör við fordóma í garð fólks með annan húðlit hér á landi. Já, og btw hún var hvít! Halló! Fyrir utan að myndirnar eru ljótar og ekkert barnaefni að mínu mati. Þótt þær séu eftir Mugg.
Menningarlegt verðmæti?
Það fer eftir því hversu á það er litið, vissulega verðmæt heimild um viðhorf sem eru enn við lýði.
Ein grein sem hjálpar fólki kannski aðeins að átta sig á alvarleika málsins..

|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home