3.10.07

Hálfvitar á bókhlöðunni

Einhver hálfviti hefur tekið allt greinasafnið í Straumum og stefnum úr hillunni og farið með það eitthvert! Nú er ég búin að vera hér í hálftíma og ekki hefur það skilað sér í hilluna. Hvað er að fólki? Getur það ekki tekið eina og eina grein í einu eins og fullorðið fólk? Þoli ekki svona hálfvita. Nú er tíma mínum hér svo til eytt til einskis því greinin fyrir morgundaginn er þarna á meðal og ekki sýnist mér að ég muni ná að ljósrita hana úr þessu. Annað lesefni var ég ekki með með mér. En ég skrifaði nokkur email. Og hékk á Facebook..

|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home