13.4.04

Gledilega láska

Hehe.. thid vitid ekki hvad láska thýdir á tékknesku, en á bladi maetti halda ad thad rímadi vid "páska"...hí hí hí...
Býd Rut og Helgu Thóru velkomnar á síduna mína fínu.
Um páskana var ég vid helgihald í Hlinsko, máladi egg og vard vitni ad hinum hraedilega nidurlaegjandi karlrembusid er fram fer á hverjum páskamánudagsmorgni hér í landi. Nú, egg eru hardsodin og litud og litlir vendir úr hríslum útbúnir. Ég var búin ad átta mig á theirri páskahefd. En tilgangurinn opinberadist ekki fyrr en fyrrnefndan morgun. Strákarnir sem sagt hópust út úr sínum húsum og banka á dyr hjá ödrum og heimsaetan fer til dyra. Piltarnir rassskella stúlkurnar med vendinum og fara med einhverja vísu á medan um ad stúlkan eigi ad gefa sér egg. Hún gefur honum sídan egg, og hann fer í naestu hús. Finnst ykkur thetta ekki ógedslegt!!!! Thetta er svo fáránlega kynferdislegt! Ad gefa eggid, og stúlkan flengd. Hraedilegt hraedilegt hraedilegt. Og thetta stunda piltar fram á unglingsár og jafnvel lengur og sums stadar er theim gefid áfengi svo ég get ímyndad mér ad thetta geti ordid ansi subbulegt. Fuj.
Sinn er ógedslegur sidur í landi hverju og ber vott um tjódarsálina! Best ad fara á kóraefingu og syngja kill the man af mikilli innlifun.

|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home