25.7.04

Kaffi með sojamjólk

Klukkan er hálfníu og ég vaknaði 10. morguninn í röð fyrir klukkan sex, til þess að fleygja morgunskætingnum á borðin og laga blessaðan kaffisopann ofan í forríku gesti vora. Hljóp einn vakningarhring og vöknuðu allir er um það höfðu beðið. Næst á dagskrá er frágangur morgunverðar og hnífapara, aukinheldur uppvask. Nenni ég alls ekki að standa í slíku. Þess utan er hópur fólks að koma í dag og annað eins að fara, og tryllingslegt stress í uppsiglingu samkvæmt venju á skiptidegi. Veiðitíminn er nefninlega til klukkan 13 morgnana og þá fá gestirnir hádegismat og eru kannski ekkert farnir fyrir um klukkan 14 og svo kemur súpan klukkan 14 30 og herbergin eigi tilbúin. Þetta er eilífur höfuðverkur hótelstarfsmanna í veiðihúsi, en nú hef ég fundið upp leynilega hernaðaraðgerð sem flýtir talsvert fyrir öllu. Mun hún eigi upp gefin hér.. 

Annars var Victor að segja mér frá ótrúlega sniðugum netsíma fyrir þá sem ekki vilja nota microsoft...

Eitt samtal úr vinnunni. B (Breti, 19 ára stúlka) og German (Argentínumaður 28 ára) tala saman.
G: I have to ask you for one favour.
B: What?
G: Do you have some DVD?
B: Yeah, sure.
G: Can I borrow some?
B: Yes of course.
G: What have you  got?
B: (yfirlætislega) Whatever.
G: (fullur eftirvæntingar) Porn?

(hahahahahahhahhahhahha og síðan hló hann hinum afhjúpandi klámhlátri)
Þetta var allavega doldið fyndið í gær, en ég meina, þið hefðuð kannski þurft að vera á staðnum, þið vitið...


|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home