16.1.05

Andleysi

Enn ein helgi. Helguð Völsungum, sifjaspellum, brjálæði, barnsfæðingum, steiktum mannshjörtum og síðast en ekki síst: hefndum. Því laust niðr í hug mér, þá er ég las um einlægar gelgjuástir Sigurðar Fáfnisbana og Brynhildar Buðladóttur, hvort einhverjum hafi nokkuð dottið í hug að fornritin séu rituð af konum? Nú er ég alveg að verða búin með 200gr af Lays. Þær eru nefninlega Naturally Irresistable..Þær keypti ég í Barónsfjósinu, sem nú heitir 10-11. Í morgun fór ég líka í Barónsfjósið og keypti klósettpappír og appelsínusafa. En ég gleymdi að kaupa ljósaperur í bæði skiptin.

|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home