26.7.07

The Creation




Ég hef verið að skoða aðeins aríu úr Sköpuninni eftir Haydn, Now robed in cool refreshing green.. Þetta er unaðsleg aría og ég er strax byrjuð að fá hana á heilann. Viðurkenni að ég þekki þetta verk alls ekki neitt og nú langar mig mest að hlaupa út í búð og kaupa strax.. ef einhver veit um ákjósanlega upptöku má viðkomandi láta mig vita. Haydn er bestur!

Annars er ég í Goðheimum í dag að vinna því Jansa var með svo mikið grænt hor í morgun að ég sá henni alls ekki fært að mæta til dagmömmunnar. Þar sem mín "vinna" er þannig úr garði gerð að henni má sinna nánast hvar sem er, gerir það ekki svo mikið til. Ég keypti handa henni teikniblokk og liti og þreytir hún nú frumraun sína á teiknisviðinu.

|

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home